← Psalms (26/150) → |
1. | Davíðssálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að ég geng fram í grandvarleik og þér treysti ég óbifanlega. |
2. | Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta. |
3. | Því að ég hefi elsku þína fyrir augum, og ég geng í sannleika þínum. |
4. | Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn. |
5. | Ég hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra. |
6. | Ég þvæ hendur mínar í sakleysi og geng í kringum altari þitt, Drottinn, |
7. | til þess að láta lofsönginn hljóma og segja frá öllum þínum dásemdarverkum. |
8. | Drottinn, ég elska bústað húss þíns og staðinn þar sem dýrð þín býr. |
9. | Hríf eigi sál mína burt með syndurum né líf mitt með morðingjum, |
10. | þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum. |
11. | En ég geng fram í grandvarleik, frelsa mig og líkna mér.Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin. |
12. | Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin. |
← Psalms (26/150) → |