← Psalms (25/150) → |
1. | Davíðssálmur. |
2. | Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér. |
3. | Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar, þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu. |
4. | Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. |
5. | Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig. |
6. | Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð. |
7. | Minnst eigi æskusynda minna og afbrota, minnst mín eftir elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn. |
8. | Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn. |
9. | Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum þjökuðu veg sinn. |
10. | Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða. |
11. | Sakir nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil. |
12. | Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja. |
13. | Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið. |
14. | Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann, og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan. |
15. | Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni. |
16. | Snú þér til mín og líkna mér, því að ég er einmana og hrjáður. |
17. | Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum. |
18. | Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar. |
19. | Lít á, hversu margir óvinir mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig. |
20. | Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis. |
21. | Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég.Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans. |
22. | Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans. |
← Psalms (25/150) → |