← Psalms (24/150) → |
1. | Davíðssálmur. Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er, heimurinn og þeir sem í honum búa. |
2. | Því að hann hefir grundvallað hana á hafinu og fest hana á vötnunum. |
3. | _ Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dveljast á hans helga stað? |
4. | _ Sá er hefir óflekkaðar hendur og hreint hjarta, eigi sækist eftir hégóma og eigi vinnur rangan eið. |
5. | Hann mun blessun hljóta frá Drottni og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns. |
6. | _ Þessi er sú kynslóð er leitar Drottins, stundar eftir augliti þínu, þú Jakobs Guð. [Sela] _________ |
7. | _ Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga. |
8. | _ Hver er þessi konungur dýrðarinnar? _ Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan. |
9. | _ Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga._ Hver er þessi konungur dýrðarinnar? _ Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar. [Sela] |
10. | _ Hver er þessi konungur dýrðarinnar? _ Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar. [Sela] |
← Psalms (24/150) → |