← Psalms (21/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni! |
3. | Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela] |
4. | Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum. |
5. | Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi. |
6. | Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum. |
7. | Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu. |
8. | Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi. |
9. | Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna. |
10. | Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim. |
11. | Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi, |
12. | því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum. [ (Psalms 21:14) Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín! ] |
13. | Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum. [ (Psalms 21:14) Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín! ] |
← Psalms (21/150) → |