← Psalms (20/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér. |
3. | Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon. |
4. | Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. [Sela] |
5. | Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum. |
6. | Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar. |
7. | Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram. |
8. | Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir. [ (Psalms 20:10) Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum. ] |
9. | Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir. [ (Psalms 20:10) Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum. ] |
← Psalms (20/150) → |