← Psalms (19/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa. |
3. | Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki. |
4. | Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra. |
5. | Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina, og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald. |
6. | Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt. |
7. | Við takmörk himins rennur hann upp, og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans. _________ |
8. | Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran. |
9. | Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun. |
10. | Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát. |
11. | Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur. |
12. | Þjónn þinn varðveitir þau kostgæfilega, að halda þau hefir mikil laun í för með sér. |
13. | En hver verður var við yfirsjónirnar? Sýkna mig af leyndum brotum!Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti. [ (Psalms 19:15) Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari! ] |
14. | Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti. [ (Psalms 19:15) Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari! ] |
← Psalms (19/150) → |