← Psalms (16/150) → |
1. | Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. |
2. | Ég segi við Drottin: ,,Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.`` |
3. | Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu _ á þeim hefi ég alla mína velþóknun. |
4. | Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir. |
5. | Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. |
6. | Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel. |
7. | Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra. |
8. | Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur. |
9. | Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði, |
10. | því að þú ofurselur Helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. |
11. | Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. |
← Psalms (16/150) → |