← Psalms (147/150) → |
1. | Halelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum, því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur. |
2. | Drottinn endurreisir Jerúsalem, safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael. |
3. | Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, og bindur um benjar þeirra. |
4. | Hann ákveður tölu stjarnanna, kallar þær allar með nafni. |
5. | Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi, speki hans er ómælanleg. |
6. | Drottinn annast hrjáða, en óguðlega lægir hann að jörðu. |
7. | Syngið Drottni með þakklæti, leikið á gígju fyrir Guði vorum. |
8. | Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni, lætur gras spretta á fjöllunum. |
9. | Hann gefur skepnunum fóður þeirra, hrafnsungunum, þegar þeir kalla. |
10. | Hann hefir eigi mætur á styrkleika hestsins, eigi þóknun á fótleggjum mannsins. |
11. | Drottinn hefir þóknun á þeim er óttast hann, þeim er bíða miskunnar hans. |
12. | Vegsama Drottin, Jerúsalem, lofa þú Guð þinn, Síon, |
13. | því að hann hefir gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum, blessað börn þín, sem í þér eru. |
14. | Hann gefur landi þínu frið, seður þig á hinu kjarnbesta hveiti. |
15. | Hann sendir orð sitt til jarðar, boð hans hleypur með hraða. |
16. | Hann gefur snjó eins og ull, stráir út hrími sem ösku. |
17. | Hann sendir hagl sitt sem brauðmola, hver fær staðist frost hans? |
18. | Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna, lætur vind sinn blása, og vötnin renna. |
19. | Hann kunngjörði Jakob orð sitt, Ísrael lög sín og ákvæði.Svo hefir hann eigi gjört við neina þjóð, þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Halelúja. |
20. | Svo hefir hann eigi gjört við neina þjóð, þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Halelúja. |
← Psalms (147/150) → |