← Psalms (146/150) → |
1. | Halelúja. Lofa þú Drottin, sála mín! |
2. | Ég vil lofa Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til. |
3. | Treystið eigi tignarmennum, mönnum sem enga hjálp geta veitt. |
4. | Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu, á þeim degi verða áform þeirra að engu. |
5. | Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar, sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn, |
6. | hann sem skapað hefir himin og jörð, hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu, |
7. | sem rekur réttar kúgaðra og veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir hina bundnu, |
8. | Drottinn opnar augu blindra, Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta. |
9. | Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa, en óguðlega lætur hann fara villa vegar.Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn, Síon, frá kyni til kyns. Halelúja. |
10. | Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn, Síon, frá kyni til kyns. Halelúja. |
← Psalms (146/150) → |