← Psalms (145/150) → |
1. | Davíðs-lofsöngur. Ég vil vegsama þig, ó Guð minn, þú konungur, og prísa nafn þitt um aldur og ævi. |
2. | Á hverjum degi vil ég prísa þig og lofa nafn þitt um aldur og ævi. |
3. | Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, mikilleikur hans er órannsakanlegur. |
4. | Ein kynslóðin vegsamar verk þín fyrir annarri og kunngjörir máttarverk þín. |
5. | Þær segja frá tign og dýrð vegsemdar þinnar: ,,Ég vil syngja um dásemdir þínar.`` |
6. | Og um mátt ógnarverka þinna tala þær: ,,Ég vil segja frá stórvirkjum þínum.`` |
7. | Þær minna á þína miklu gæsku og fagna yfir réttlæti þínu. |
8. | Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. |
9. | Drottinn er öllum góður, og miskunn hans er yfir öllu, sem hann skapar. |
10. | Öll sköpun þín lofar þig, Drottinn, og dýrkendur þínir prísa þig. |
11. | Þeir tala um dýrð konungdóms þíns, segja frá veldi þínu. |
12. | Þeir kunngjöra mönnum veldi þitt, hina dýrlegu tign konungdóms þíns. |
13. | Konungdómur þinn er konungdómur um allar aldir og ríki þitt stendur frá kyni til kyns. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum. |
14. | Drottinn styður alla þá, er ætla að hníga, og reisir upp alla niðurbeygða. |
15. | Allra augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma. |
16. | Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun. |
17. | Drottinn er réttlátur á öllum sínum vegum og miskunnsamur í öllum sínum verkum. |
18. | Drottinn er nálægur öllum sem ákalla hann, öllum sem ákalla hann í einlægni. |
19. | Hann uppfyllir ósk þeirra er óttast hann, og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim. |
20. | Drottinn varðveitir alla þá er elska hann, en útrýmir öllum níðingum.Munnur minn skal mæla orðstír Drottins, allt hold vegsami hans heilaga nafn um aldur og ævi. |
21. | Munnur minn skal mæla orðstír Drottins, allt hold vegsami hans heilaga nafn um aldur og ævi. |
← Psalms (145/150) → |