| ← Psalms (144/150) → |
| 1. | Eftir Davíð. Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt, sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu. |
| 2. | Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari, skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig. |
| 3. | Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann, mannsins barn, að þú gefir því gaum. |
| 4. | Maðurinn er sem vindblær, dagar hans sem hverfandi skuggi. |
| 5. | Drottinn, sveig þú himin þinn og stíg niður, snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki. |
| 6. | Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum, skjót örvum þínum og skelf þá. |
| 7. | Rétt út hönd þína frá hæðum, hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna. |
| 8. | Munnur þeirra mælir tál, og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd. |
| 9. | Guð, ég vil syngja þér nýjan söng, ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu. |
| 10. | Þú veitir konungunum sigur, hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði. |
| 11. | Hríf mig burt og bjarga mér af hendi útlendinganna. Munnur þeirra mælir tál, og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd. |
| 12. | Synir vorir eru sem þroskaðir teinungar í æsku sinni, dætur vorar sem hornsúlur, úthöggnar í hallarstíl. |
| 13. | Hlöður vorar eru fullar og veita afurðir af hverri tegund, fénaður vor getur af sér þúsundir, verður tíþúsundfaldur á haglendum vorum, |
| 14. | uxar vorir klyfjaðir, ekkert skarð og engir hernumdir og ekkert óp á torgum vorum.Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir, sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði. |
| 15. | Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir, sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði. |
| ← Psalms (144/150) → |