← Psalms (142/150) → |
1. | Maskíl eftir Davíð, er hann var í hellinum. Bæn. |
2. | Ég hrópa hátt til Drottins, hástöfum grátbæni ég Drottin. |
3. | Ég úthelli kveini mínu fyrir honum, tjái honum neyð mína. |
4. | Þegar andi minn örmagnast í mér, þekkir þú götu mína. Á leið þeirri er ég geng hafa þeir lagt snörur fyrir mig. |
5. | Ég lít til hægri handar og skyggnist um, en enginn kannast við mig. Mér er varnað sérhvers hælis, enginn spyr eftir mér. |
6. | Ég hrópa til þín, Drottinn, ég segi: Þú ert hæli mitt, hlutdeild mín á landi lifenda.Veit athygli kveini mínu, því að ég er mjög þjakaður, bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari. [ (Psalms 142:8) Leið mig út úr dýflissunni, að ég megi lofa nafn þitt, hinir réttlátu skipast í kringum mig, þegar þú gjörir vel til mín. ] |
7. | Veit athygli kveini mínu, því að ég er mjög þjakaður, bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari. [ (Psalms 142:8) Leið mig út úr dýflissunni, að ég megi lofa nafn þitt, hinir réttlátu skipast í kringum mig, þegar þú gjörir vel til mín. ] |
← Psalms (142/150) → |