Psalms (140/150)  

1. Til söngstjórans. Davíðssálmur.
2. Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,
3. þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum.
4. Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra. [Sela]
5. Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.
6. Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. [Sela]
7. Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.
8. Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.
9. Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast. [Sela]
10. Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.
11. Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.
12. Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra. [ (Psalms 140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu. ]
13. Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra. [ (Psalms 140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu. ]

  Psalms (140/150)