← Psalms (139/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig. |
2. | Hvort sem ég sit eða stend, þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar. |
3. | Hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú. |
4. | Því að eigi er það orð á tungu minni, að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls. |
5. | Þú umlykur mig á bak og brjóst, og hönd þína hefir þú lagt á mig. |
6. | Þekking þín er undursamlegri en svo, að ég fái skilið, of háleit, ég er henni eigi vaxinn. |
7. | Hvert get ég farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu? |
8. | Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar. |
9. | Þótt ég lyfti mér á vængi morgunroðans og settist við hið ysta haf, |
10. | einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér. |
11. | Og þótt ég segði: ,,Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,`` |
12. | þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér. |
13. | Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi. |
14. | Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel. |
15. | Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar. |
16. | Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn. |
17. | En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar. |
18. | Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin, ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér. |
19. | Ó að þú, Guð, vildir fella níðingana. Morðingjar! Víkið frá mér. |
20. | Þeir þrjóskast gegn þér með svikum og leggja nafn þitt við hégóma. |
21. | Ætti ég eigi, Drottinn, að hata þá, er hata þig, og hafa viðbjóð á þeim, er rísa gegn þér? |
22. | Ég hata þá fullu hatri, þeir eru orðnir óvinir mínir. |
23. | Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt, rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar,og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg. |
24. | og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg. |
← Psalms (139/150) → |