← Psalms (137/150) → |
1. | Við Babýlons fljót, þar sátum vér og grétum, er vér minntumst Síonar. |
2. | Á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar. |
3. | Því að herleiðendur vorir heimtuðu söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti: ,,Syngið oss Síonarkvæði!`` |
4. | Hvernig ættum vér að syngja Drottins ljóð í öðru landi? |
5. | Ef ég gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd. |
6. | Tunga mín loði mér við góm, ef ég man eigi til þín, ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt. |
7. | Mun þú Edóms niðjum, Drottinn, óheilladag Jerúsalem, þegar þeir æptu: ,,Rífið, rífið allt niður til grunna!`` |
8. | Babýlonsdóttir, þú sem tortímir! Heill þeim, er geldur þér fyrir það sem þú hefir gjört oss!Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein. |
9. | Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein. |
← Psalms (137/150) → |