← Psalms (135/150) → |
1. | Halelúja. Lofið nafn Drottins, lofið hann, þér þjónar Drottins, |
2. | er standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors. |
3. | Lofið Drottin, því að Drottinn er góður, leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt. |
4. | Því að Drottinn hefir útvalið sér Jakob, gert Ísrael að eign sinni. |
5. | Já, ég veit, að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri. |
6. | Allt, sem Drottni þóknast, það gjörir hann, á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum. |
7. | Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar, gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans. |
8. | Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og skepnur, |
9. | sendi tákn og undur yfir Egyptaland, gegn Faraó og öllum þjónum hans. |
10. | Hann laust margar þjóðir og deyddi volduga konunga: |
11. | Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan, og öll konungsríki í Kanaan, |
12. | og gaf lönd þeirra að erfð, að erfð Ísrael, lýð sínum. |
13. | Drottinn, nafn þitt varir að eilífu, minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns, |
14. | því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína. |
15. | Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull, handaverk manna. |
16. | Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki, |
17. | þau hafa eyru, en heyra ekki, og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra. |
18. | Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta. |
19. | Ísraels ætt, lofið Drottin, Arons ætt, lofið Drottin! |
20. | Leví ætt, lofið Drottin, þér sem óttist Drottin, lofið hann!Lofaður sé Drottinn frá Síon, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja. |
21. | Lofaður sé Drottinn frá Síon, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja. |
← Psalms (135/150) → |