← Psalms (132/150) → |
1. | Drottinn, mun þú Davíð allar þrautir hans, |
2. | hann sem sór Drottni, gjörði heit hinum volduga Jakobs Guði: |
3. | ,,Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt, eigi stíga í hvílurúm mitt, |
4. | eigi unna augum mínum svefns né augnalokum mínum blunds, |
5. | fyrr en ég hefi fundið stað fyrir Drottin, bústað fyrir hinn volduga Jakobs Guð.`` |
6. | Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata, fundið hann á Jaarmörk. |
7. | Látum oss ganga til bústaðar Guðs, falla fram á fótskör hans. |
8. | Tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn, þú og örk máttar þíns. |
9. | Prestar þínir íklæðist réttlæti og dýrkendur þínir fagni. |
10. | Sakir Davíðs þjóns þíns vísa þú þínum smurða eigi frá. |
11. | Drottinn hefir svarið Davíð óbrigðulan eið, er hann eigi mun rjúfa: ,,Af ávexti kviðar þíns mun ég setja mann í hásæti þitt. |
12. | Ef synir þínir varðveita sáttmála minn og reglur mínar, þær er ég kenni þeim, þá skulu og þeirra synir um aldur sitja í hásæti þínu.`` |
13. | Því að Drottinn hefir útvalið Síon, þráð hana sér til bústaðar: |
14. | ,,Þetta er hvíldarstaður minn um aldur, hér vil ég búa, því að hann hefi ég þráð. |
15. | Vistir hans vil ég vissulega blessa, og fátæklinga hans vil ég seðja með brauði, |
16. | presta hans vil ég íklæða hjálpræði, hinir guðhræddu er þar búa skulu kveða fagnaðarópi. |
17. | Þar vil ég láta Davíð horn vaxa, þar hefi ég búið lampa mínum smurða.Óvini hans vil ég íklæða skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma.`` |
18. | Óvini hans vil ég íklæða skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma.`` |
← Psalms (132/150) → |