← Psalms (13/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
2. | Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að gleyma mér með öllu? Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér? |
3. | Hversu lengi á ég að bera sút í sál, harm í hjarta dag frá degi? Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir mig? |
4. | Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að ég sofni ekki svefni dauðans, |
5. | að óvinur minn geti ekki sagt: ,,Ég hefi borið af honum!`` að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að mér skriðni fótur.Ég treysti á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín. |
6. | Ég treysti á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín. |
← Psalms (13/150) → |