← Psalms (127/150) → |
1. | Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis. |
2. | Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð, sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni! |
3. | Sjá, synir eru gjöf frá Drottni, ávöxtur móðurkviðarins er umbun. |
4. | Eins og örvar í hendi kappans, svo eru synir getnir í æsku.Sæll er sá maður, er fyllt hefir örvamæli sinn með þeim, þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu. |
5. | Sæll er sá maður, er fyllt hefir örvamæli sinn með þeim, þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu. |
← Psalms (127/150) → |