← Psalms (126/150) → |
1. | Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi. |
2. | Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: ,,Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá.`` |
3. | Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir. |
4. | Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu. |
5. | Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim. |
6. | Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim. |
← Psalms (126/150) → |