← Psalms (124/150) → |
1. | Hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, _ skal Ísrael segja _ |
2. | hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, þegar menn risu í móti oss, |
3. | þá hefðu þeir gleypt oss lifandi, þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss. |
4. | Þá hefðu vötnin streymt yfir oss, elfur gengið yfir oss, |
5. | þá hefðu gengið yfir oss hin beljandi vötn. |
6. | Lofaður sé Drottinn, er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð. |
7. | Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans. Brast snaran, burt sluppum vér.Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar. |
8. | Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar. |
← Psalms (124/150) → |