← Psalms (123/150) → |
1. | Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum. |
2. | Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar, svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss. |
3. | Líkna oss, Drottinn, líkna oss, því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti.Sál vor hefir fengið meira en nóg af háði hrokafullra, af spotti dramblátra. |
4. | Sál vor hefir fengið meira en nóg af háði hrokafullra, af spotti dramblátra. |
← Psalms (123/150) → |