← Psalms (122/150) → |
1. | Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: ,,Göngum í hús Drottins.`` |
2. | Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem. |
3. | Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman, |
4. | þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins _ það er regla fyrir Ísrael _ til þess að lofa nafn Drottins, |
5. | því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt. |
6. | Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig. |
7. | Friður sé kringum múra þína, heill í höllum þínum. |
8. | Sakir bræðra minna og vina óska ég þér friðar.Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju. |
9. | Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju. |
← Psalms (122/150) → |