← Psalms (121/150) → |
1. | Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? |
2. | Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. |
3. | Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. |
4. | Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. |
5. | Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. |
6. | Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. |
7. | Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. |
8. | Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. |
← Psalms (121/150) → |