← Psalms (120/150) → |
1. | Ég ákalla Drottin í nauðum mínum, og hann bænheyrir mig. |
2. | Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum, frá tælandi tungu. |
3. | Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar, þú tælandi tunga? |
4. | Örvar harðstjórans eru hvesstar með glóandi viðarkolum. |
5. | Vei mér, að ég dvel hjá Mesek, bý hjá tjöldum Kedars. |
6. | Nógu lengi hefir sál mín búið hjá þeim er friðinn hata.Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið. |
7. | Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið. |
← Psalms (120/150) → |