← Psalms (118/150) → |
1. | Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. |
2. | Það mæli Ísrael: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!`` |
3. | Það mæli Arons ætt: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!`` |
4. | Það mæli þeir sem óttast Drottin: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!`` |
5. | Í þrengingunni ákallaði ég Drottin, hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig. |
6. | Drottinn er með mér, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér? |
7. | Drottinn er með mér með hjálp sína, og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna. |
8. | Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum, |
9. | betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta tignarmönnum. |
10. | Allar þjóðir umkringdu mig, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim. |
11. | Þær umkringdu mig á alla vegu, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim. |
12. | Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim. |
13. | Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla, en Drottinn veitti mér lið. |
14. | Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mér til hjálpræðis. |
15. | Fagnaðar- og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra: Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki, |
16. | hægri hönd Drottins upphefur, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki. |
17. | Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins. |
18. | Drottinn hefir hirt mig harðlega, en eigi ofurselt mig dauðanum. |
19. | Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins, að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin. |
20. | Þetta er hlið Drottins, réttlátir menn fara inn um það. |
21. | Ég lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði. |
22. | Steinninn sem smiðirnir höfnuðu er orðinn að hyrningarsteini. |
23. | Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum. |
24. | Þetta er dagurinn sem Drottinn hefir gjört, fögnum, verum glaðir á honum. |
25. | Drottinn, hjálpa þú, Drottinn, gef þú gengi! |
26. | Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vér yður. |
27. | Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum, allt inn að altarishornunum. |
28. | Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig.Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. |
29. | Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. |
← Psalms (118/150) → |