← Psalms (114/150) → |
1. | Þegar Ísrael fór út af Egyptalandi, Jakobs ætt frá þjóðinni, er mælti á erlenda tungu, |
2. | varð Júda helgidómur hans, Ísrael ríki hans. |
3. | Hafið sá það og flýði, Jórdan hörfaði undan. |
4. | Fjöllin hoppuðu sem hrútar, hæðirnar sem lömb. |
5. | Hvað er þér, haf, er þú flýr, Jórdan, er þú hörfar undan, |
6. | þér fjöll, er þér hoppið sem hrútar, þér hæðir sem lömb? |
7. | Titra þú, jörð, fyrir augliti Drottins, fyrir augliti Jakobs Guðs,hans sem gjörir klettinn að vatnstjörn, tinnusteininn að vatnslind. |
8. | hans sem gjörir klettinn að vatnstjörn, tinnusteininn að vatnslind. |
← Psalms (114/150) → |