← Psalms (113/150) → |
1. | Halelúja. Þjónar Drottins, lofið, lofið nafn Drottins. |
2. | Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu. |
3. | Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað. |
4. | Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir og dýrð hans yfir himnana. |
5. | Hver er sem Drottinn, Guð vor? Hann situr hátt |
6. | og horfir djúpt á himni og á jörðu. |
7. | Hann reisir lítilmagnann úr duftinu, lyftir snauðum upp úr saurnum |
8. | og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum, hjá tignarmönnum þjóðar hans.Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja. |
9. | Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja. |
← Psalms (113/150) → |