← Psalms (11/150) → |
1. | Til söngstjórans. Davíðssálmur. Hjá Drottni leita ég hælis. Hvernig getið þér sagt við mig: ,,Fljúg sem fugl til fjallanna!`` |
2. | Því að nú benda hinir óguðlegu bogann, leggja örvar sínar á streng til þess að skjóta í myrkrinu á hina hjartahreinu. |
3. | Þegar stoðirnar eru rifnar niður, hvað megna þá hinir réttlátu? |
4. | Drottinn er í sínu heilaga musteri, hásæti Drottins er á himnum, augu hans sjá, sjónir hans rannsaka mennina. |
5. | Drottinn rannsakar hinn réttláta og hinn óguðlega, og þann er elskar ofríki, hatar hann. |
6. | Á óguðlega lætur hann rigna glóandi kolum, eldur og brennisteinn og brennheitur vindur er þeirra mældi bikar.Því að Drottinn er réttlátur og hefir mætur á réttlætisverkum. Hinir hreinskilnu fá að líta auglit hans. |
7. | Því að Drottinn er réttlátur og hefir mætur á réttlætisverkum. Hinir hreinskilnu fá að líta auglit hans. |
← Psalms (11/150) → |