← Psalms (107/150) → |
1. | Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. |
2. | Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefir leyst úr nauðum |
3. | og safnað saman úr löndunum, frá austri og vestri, frá norðri og suðri. |
4. | Þeir reikuðu um eyðimörkina, um veglaus öræfin, og fundu eigi byggilegar borgir, |
5. | þá hungraði og þyrsti, sál þeirra vanmegnaðist í þeim. |
6. | Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann bjargaði þeim úr angist þeirra |
7. | og leiddi þá um slétta leið, svo að þeir komust til byggilegrar borgar. |
8. | Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, |
9. | því að hann mettaði magnþrota sál og fyllti hungraða sál gæðum. |
10. | Þeir sem sátu í myrkri og niðdimmu, bundnir eymd og járnum, |
11. | af því að þeir höfðu þrjóskast við orðum Guðs og fyrirlitið ráð Hins hæsta, |
12. | svo að hann beygði hug þeirra með mæðu, þeir hrösuðu, og enginn liðsinnti þeim. |
13. | Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra, |
14. | hann leiddi þá út úr myrkrinu og niðdimmunni og braut sundur fjötra þeirra. |
15. | Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, |
16. | því að hann braut eirhliðin og mölvaði járnslárnar. |
17. | Heimskingjar, er vegna sinnar syndsamlegu breytni og vegna misgjörða sinna voru þjáðir, |
18. | þeim bauð við hverri fæðu og voru komnir nálægt hliðum dauðans. |
19. | Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra, |
20. | hann sendi út orð sitt og læknaði þá og bjargaði þeim frá gröfinni. |
21. | Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, |
22. | og færa þakkarfórnir og kunngjöra verk hans með fögnuði. |
23. | Þeir sem fóru um hafið á skipum, ráku verslun á hinum miklu vötnum, |
24. | þeir hafa séð verk Drottins og dásemdir hans á djúpinu. |
25. | Því að hann bauð og þá kom stormviðri, sem hóf upp bylgjur þess. |
26. | Þeir hófust til himins, sigu niður í djúpið, þeim féllst hugur í neyðinni. |
27. | Þeir römbuðu og skjögruðu eins og drukkinn maður, og öll kunnátta þeirra var þrotin. |
28. | Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, og hann leiddi þá úr angist þeirra. |
29. | Hann breytti stormviðrinu í blíðan blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar. |
30. | Þá glöddust þeir, af því að þær kyrrðust, og hann lét þá komast í höfn þá, er þeir þráðu. |
31. | Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, |
32. | vegsama hann á þjóðarsamkomunni og lofa hann í hóp öldunganna. |
33. | Hann gjörir fljótin að eyðimörk og uppsprettur að þurrum lendum, |
34. | frjósamt land að saltsléttu sakir illsku íbúanna. |
35. | Hann gjörir eyðimörkina að vatnstjörnum og þurrlendið að uppsprettum |
36. | og lætur hungraða menn búa þar, að þeir megi grundvalla byggilega borg, |
37. | sá akra og planta víngarða og afla afurða. |
38. | Og hann blessar þá, svo að þeir margfaldast stórum og fénað þeirra lætur hann eigi fækka. |
39. | Og þótt þeir fækki og hnígi niður sakir þrengingar af böli og harmi, |
40. | þá hellir hann fyrirlitning yfir tignarmenn og lætur þá villast um veglaus öræfi, |
41. | en bjargar aumingjanum úr eymdinni og gjörir ættirnar sem hjarðir. |
42. | Hinir réttvísu sjá það og gleðjast, og öll illska lokar munni sínum.Hver sem er vitur, gefi gætur að þessu, og menn taki eftir náðarverkum Drottins. |
43. | Hver sem er vitur, gefi gætur að þessu, og menn taki eftir náðarverkum Drottins. |
← Psalms (107/150) → |