← Psalms (103/150) → |
1. | Davíðssálmur. Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn, |
2. | lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. |
3. | Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein, |
4. | leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn. |
5. | Hann mettar þig gæðum, þú yngist upp sem örninn. |
6. | Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum. |
7. | Hann gjörði Móse vegu sína kunna og Ísraelsbörnum stórvirki sín. |
8. | Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. |
9. | Hann þreytir eigi deilur um aldur og er eigi eilíflega reiður. |
10. | Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum, |
11. | heldur svo hár sem himinninn er yfir jörðunni, svo voldug er miskunn hans við þá er óttast hann. |
12. | Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss. |
13. | Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann. |
14. | Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér erum mold. |
15. | Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni, |
16. | þegar vindur blæs á hann er hann horfinn, og staður hans þekkir hann ekki framar. |
17. | En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar, og réttlæti hans nær til barnabarnanna, |
18. | þeirra er varðveita sáttmála hans og muna að breyta eftir boðum hans. |
19. | Drottinn hefir reist hásæti sitt á himnum, og konungdómur hans drottnar yfir alheimi. |
20. | Lofið Drottin, þér englar hans, þér voldugu hetjur, er framkvæmið boð hans, er þér heyrið hljóminn af orði hans. |
21. | Lofið Drottin, allar hersveitir hans, þjónar hans, er framkvæmið vilja hans.Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin, sála mín. |
22. | Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin, sála mín. |
← Psalms (103/150) → |