← Psalms (100/150) → |
1. | Þakkarfórnar-sálmur. Öll veröldin fagni fyrir Drottni! |
2. | Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng! |
3. | Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefir skapað oss, og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð. |
4. | Gangið inn um hlið hans með lofsöng, í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. |
5. | Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. |
← Psalms (100/150) → |