← Psalms (10/150) → |
1. | Hví stendur þú fjarri, Drottinn, hví byrgir þú augu þín á neyðartímum? |
2. | Hinn óguðlegi ofsækir hina hrjáðu í hroka sínum, þeir flækjast í vélum þeim, er þeir hafa upp hugsað. |
3. | Hinn óguðlegi lofar Guð fyrir það, er sála hans girnist, og hinn ásælni prísar Drottin, sem hann fyrirlítur. |
4. | Hinn óguðlegi segir í drambsemi sinni: ,,Hann hegnir eigi!`` ,,Guð er ekki til`` _ svo hugsar hann í öllu. |
5. | Fyrirtæki hans heppnast ætíð, dómar þínir fara hátt yfir höfði hans, alla fjandmenn sína kúgar hann. |
6. | Hann segir í hjarta sínu: ,,Ég verð eigi valtur á fótum, frá kyni til kyns mun ég eigi í ógæfu rata.`` |
7. | Munnur hans er fullur af formælingum, svikum og ofbeldi, undir tungu hans býr illska og ranglæti. |
8. | Hann situr í launsátri í þorpunum, í skúmaskotinu drepur hann hinn saklausa, augu hans skima eftir hinum bágstöddu. |
9. | Hann gjörir fyrirsát í fylgsninu eins og ljón í skógarrunni; hann gjörir fyrirsát til þess að ná hinum volaða, hann nær honum í snöru sína, í net sitt. |
10. | Kraminn hnígur hann niður, hinn bágstaddi fellur fyrir klóm hans. |
11. | Hann segir í hjarta sínu: ,,Guð gleymir því, hann hefir hulið auglit sitt, sér það aldrei.`` |
12. | Rís þú upp, Drottinn! Lyft þú upp hendi þinni, Guð! Gleym eigi hinum voluðu. |
13. | Hvers vegna á hinn óguðlegi að sýna Guði fyrirlitningu, segja í hjarta sínu: ,,Þú hegnir eigi``? |
14. | Þú gefur gaum að mæðu og böli til þess að taka það í hönd þína. Hinn bágstaddi felur þér það; þú ert hjálpari föðurlausra. |
15. | Brjót þú armlegg hins óguðlega, og er þú leitar að guðleysi hins vonda, finnur þú það eigi framar. |
16. | Drottinn er konungur um aldur og ævi, heiðingjum er útrýmt úr landi hans. |
17. | Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn, þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt.Þú lætur hina föðurlausu og kúguðu ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun. |
18. | Þú lætur hina föðurlausu og kúguðu ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun. |
← Psalms (10/150) → |