← Proverbs (9/31) → |
1. | Spekin hefir reist sér hús, höggvið til sjö stólpa sína. |
2. | Hún hefir slátrað sláturfé sínu, byrlað vín sitt, já, hún hefir þegar búið borð sitt. |
3. | Hún hefir sent út þernur sínar, hún kallar á háum stöðum í borginni: |
4. | ,,Hver, sem óreyndur er, komi hingað!`` Við þann, sem óvitur er, segir hún: |
5. | ,,Komið, etið mat minn og drekkið vínið, sem ég hefi byrlað. |
6. | Látið af heimskunni, þá munuð þér lifa, og fetið veg hyggindanna.`` |
7. | Sá sem áminnir spottara, bakar sér smán, og þeim sem ávítar óguðlegan, verður það til vansa. |
8. | Ávíta eigi spottarann, svo að hann hati þig eigi, ávíta hinn vitra, og hann mun elska þig. |
9. | Gef hinum vitra, þá verður hann að vitrari, fræð hinn réttláta, og hann mun auka lærdóm sinn. |
10. | Ótti Drottins er upphaf viskunnar og að þekkja Hinn heilaga eru hyggindi. |
11. | Því að fyrir mitt fulltingi munu dagar þínir verða margir og ár lífs þíns aukast. |
12. | Sért þú vitur, þá ert þú vitur þér til góðs, en sért þú spottari, þá mun það bitna á þér einum. |
13. | Frú Heimska er óhemja, einföld og veit ekkert. |
14. | Hún situr úti fyrir húsdyrum sínum, á stól uppi á háu stöðunum í borginni |
15. | til þess að kalla á þá, sem um veginn fara, þá er ganga beint áfram leið sína: |
16. | ,,Hver sem óreyndur er, komi hingað!`` og við þann sem óvitur er, segir hún: |
17. | ,,Stolið vatn er sætt, og lostætt er launetið brauð.``Og hann veit ekki, að þar eru hinir framliðnu, að þeir sem hún hefir boðið heim, eru í djúpum Heljar. |
18. | Og hann veit ekki, að þar eru hinir framliðnu, að þeir sem hún hefir boðið heim, eru í djúpum Heljar. |
← Proverbs (9/31) → |