← Proverbs (8/31) → |
1. | Heyr, spekin kallar og hyggnin lætur raust sína gjalla. |
2. | Uppi á hæðunum við veginn, þar sem göturnar kvíslast _ stendur hún. |
3. | Við hliðin, þar sem gengið er út úr borginni, þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt: |
4. | Til yðar, menn, tala ég, og raust mín hljómar til mannanna barna. |
5. | Þér óreyndu, lærið hyggindi, og þér heimskingjar, lærið skynsemi. |
6. | Hlýðið á, því að ég tala það sem göfuglegt er, og varir mínar tjá það sem rétt er. |
7. | Því að sannleika mælir gómur minn og guðleysi er viðbjóður vörum mínum. |
8. | Einlæg eru öll orð munns míns, í þeim er ekkert fals né fláræði. |
9. | Öll eru þau einföld þeim sem skilning hefir, og blátt áfram fyrir þann sem hlotið hefir þekkingu. |
10. | Takið á móti ögun minni fremur en á móti silfri og fræðslu fremur en úrvals gulli. |
11. | Því að viska er betri en perlur, og engir dýrgripir jafnast á við hana. |
12. | Ég, spekin, er handgengin hyggindunum og ræð yfir ráðdeildarsamri þekking. |
13. | Að óttast Drottin er að hata hið illa, drambsemi og ofdramb og illa breytni og fláráðan munn _ það hata ég. |
14. | Mín er ráðspekin og framkvæmdarsemin, ég er hyggnin, minn er krafturinn. |
15. | Fyrir mína hjálp ríkja konungarnir og úrskurða höfðingjarnir réttvíslega. |
16. | Fyrir mína hjálp stjórna stjórnendurnir og tignarmennin _ allir valdsmenn á jörðu. |
17. | Ég elska þá sem mig elska, og þeir sem leita mín, finna mig. |
18. | Auður og heiður eru hjá mér, ævagamlir fjármunir og réttlæti. |
19. | Ávöxtur minn er betri en gull og gimsteinar og eftirtekjan eftir mig betri en úrvals silfur. |
20. | Ég geng á götu réttlætisins, á stigum réttarins miðjum, |
21. | til þess að gefa þeim sanna auðlegð, er elska mig, og fylla forðabúr þeirra. |
22. | Drottinn skóp mig í upphafi vega sinna, á undan öðrum verkum sínum, fyrir alda öðli. |
23. | Frá eilífð var ég sett til valda, frá upphafi, áður en jörðin var til. |
24. | Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til, þá er engar vatnsmiklar lindir voru til. |
25. | Áður en fjöllunum var hleypt niður, á undan hæðunum fæddist ég, |
26. | áður en hann skapaði völl og vengi og fyrstu moldarkekki jarðríkis. |
27. | Þegar hann gjörði himininn, þá var ég þar, þegar hann setti hvelfinguna yfir hafdjúpið, |
28. | þegar hann festi skýin uppi, þegar uppsprettur hafdjúpsins komust í skorður, |
29. | þegar hann setti hafinu takmörk, til þess að vötnin færu eigi lengra en hann bauð, þegar hann festi undirstöður jarðar. |
30. | Þá stóð ég honum við hlið sem verkstýra, og ég var yndi hans dag hvern, leikandi mér fyrir augliti hans alla tíma, |
31. | leikandi mér á jarðarkringlu hans, og hafði yndi mitt af mannanna börnum. |
32. | Og nú, þér yngismenn, hlýðið mér, því að sælir eru þeir, sem varðveita vegu mína. |
33. | Hlýðið á aga, svo að þér verðið vitrir, og látið hann eigi sem vind um eyrun þjóta. |
34. | Sæll er sá maður, sem hlýðir mér, sem vakir daglega við dyr mínar og geymir dyrastafa minna. |
35. | Því að sá sem mig finnur, finnur lífið og hlýtur blessun af Drottni.En sá sem missir mín, skaðar sjálfan sig. Allir þeir, sem hata mig, elska dauðann. |
36. | En sá sem missir mín, skaðar sjálfan sig. Allir þeir, sem hata mig, elska dauðann. |
← Proverbs (8/31) → |