← Proverbs (5/31) → |
1. | Son minn, gef gaum að speki minni, hneig eyra þitt að hyggindum mínum, |
2. | til þess að þú megir varðveita mannvit og varir þínar geymi þekkingu. |
3. | Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu, og gómur hennar er hálli en olía. |
4. | En að síðustu er hún beiskari en malurt, beitt eins og tvíeggjað sverð. |
5. | Fætur hennar ganga niður til dauðans, spor hennar liggja til Heljar. |
6. | Til þess að hún hitti ekki leið lífsins, eru brautir hennar á reiki, og hún veit ekki hvert hún fer. |
7. | Heyrið mig því, synir, og víkið eigi frá orðum munns míns. |
8. | Legg leið þína langt frá henni og kom þú ekki nálægt húsdyrum hennar, |
9. | svo að þú gefir ekki öðrum æskublóma þinn og ár þín grimmum manni, |
10. | svo að útlendir menn mettist ekki af eigum þínum og aflafé þitt lendi ekki í annarlegu húsi, |
11. | og þú andvarpir að lokum, þá er líkami þinn og hold veslast upp, |
12. | og segir: ,,Hversu hefi ég hatað aga og hjarta mitt fyrirlitið umvöndun! |
13. | að ég skyldi ekki hlýða raustu kennara minna og hneigja eyra mitt til þeirra, er fræddu mig! |
14. | Við sjálft lá, að ég hefði ratað í mestu ógæfu á miðju dómþingi safnaðarins.`` |
15. | Drekk þú vatn úr vatnsþró þinni og rennandi vatn úr brunni þínum. |
16. | Eiga lindir þínar að flóa út á götuna, lækir þínir út á torgin? |
17. | Þér einum skulu þær tilheyra og engum óviðkomandi með þér. |
18. | Uppspretta þín sé blessuð, og gleð þig yfir festarmey æsku þinnar, |
19. | elsku-hindinni, yndis-gemsunni. Brjóst hennar gjöri þig ætíð drukkinn, og ást hennar fjötri þig ævinlega. |
20. | En hví skyldir þú, son minn, láta léttúðarkonu töfra þig, og faðma barm lauslátrar konu? |
21. | Því að vegir sérhvers manns blasa við Drottni, og allar brautir hans gjörir hann sléttar. |
22. | Misgjörðir hins óguðlega fanga hann, og hann verður veiddur í snörur synda sinna.Hann mun deyja vegna skorts á aga og kollsteypast vegna sinnar miklu heimsku. |
23. | Hann mun deyja vegna skorts á aga og kollsteypast vegna sinnar miklu heimsku. |
← Proverbs (5/31) → |