← Proverbs (4/31) → |
1. | Heyrið, synir, áminning föður yðar og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi! |
2. | Því að góðan lærdóm gef ég yður, hafnið eigi kenning minni! |
3. | Þegar ég var sonur í föðurhúsum, viðkvæmt einkabarn heima hjá móður minni, |
4. | þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig: ,,Hjarta þitt haldi fast orðum mínum, varðveit þú boðorð mín, og muntu lifa! |
5. | Afla þér visku, afla þér hygginda! Gleym eigi og vík eigi frá orðum munns míns! |
6. | Hafna henni eigi, þá mun hún varðveita þig, elska hana, þá mun hún vernda þig. |
7. | Upphaf viskunnar er: afla þér visku, afla þér hygginda fyrir allar eigur þínar! |
8. | Haf hana í hávegum, þá mun hún hefja þig, hún mun koma þér til vegs, ef þú umfaðmar hana. |
9. | Hún mun setja yndislegan sveig á höfuð þér, sæma þig prýðilegri kórónu.`` |
10. | Heyr þú, son minn, og veit viðtöku orðum mínum, þá munu æviár þín mörg verða. |
11. | Ég vísa þér veg spekinnar, leiði þig á brautir ráðvendninnar. |
12. | Gangir þú þær, skal leið þín ekki verða þröng, og hlaupir þú, skalt þú ekki hrasa. |
13. | Haltu fast í agann, slepptu honum ekki, varðveittu hann, því að hann er líf þitt. |
14. | Kom þú eigi á götu óguðlegra og gakk eigi á vegi vondra manna. |
15. | Sneið hjá honum, farðu hann ekki, snú þú frá honum og farðu fram hjá. |
16. | Því að þeir geta ekki sofið, nema þeir hafi gjört illt, og þeim kemur ekki dúr á auga, nema þeir hafi fellt einhvern. |
17. | Því að þeir eta glæpabrauð og drekka ofbeldisvín. |
18. | Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, sem verður æ skærari fram á hádegi. |
19. | Vegur óguðlegra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki, um hvað þeir hrasa. |
20. | Son minn, gef gaum að ræðu minni, hneig eyra þitt að orðum mínum. |
21. | Lát þau eigi víkja frá augum þínum, varðveit þau innst í hjarta þínu. |
22. | Því að þau eru líf þeirra, er öðlast þau, og lækning fyrir allan líkama þeirra. |
23. | Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins. |
24. | Haltu fláræði munnsins burt frá þér og lát fals varanna vera fjarri þér. |
25. | Augu þín líti beint fram og augnalok þín horfi beint fram undan þér. |
26. | Gjör braut fóta þinna slétta, og allir vegir þínir séu staðfastir.Vík hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum burt frá illu. |
27. | Vík hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum burt frá illu. |
← Proverbs (4/31) → |