← Proverbs (30/31) → |
1. | Orð Agúrs Jakesonar. Guðmælið. Maðurinn segir: Ég hefi streitst, ó Guð, ég hefi streitst, ó Guð, og er að þrotum kominn. |
2. | Því að ég er of heimskur til að geta talist maður, og ég hefi eigi mannsvit, |
3. | ég hefi eigi lært speki, svo að ég hafi þekking á Hinum heilaga. |
4. | Hver hefir stigið upp til himna og komið niður? Hver hefir safnað vindinum í greipar sínar? Hver hefir bundið vatnið í skikkju sína? Hver hefir reist öll endimörk jarðar? Hvað heitir hann og hvað heitir sonur hans _ fyrst þú veist það? |
5. | Sérhvert orð Guðs er hreint, hann er skjöldur þeim, er leita hælis hjá honum. |
6. | Bæt engu við orð hans, til þess að hann ávíti þig eigi og þú standir sem lygari. |
7. | Um tvennt bið ég þig, synja mér þess eigi, áður en ég dey: |
8. | Lát fals og lygaorð vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð. |
9. | Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja: ,,Hver er Drottinn?`` eða ef ég yrði fátækur, kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns. |
10. | Ræg eigi þjóninn við húsbónda hans, svo að hann biðji þér ekki óbæna og þú verðir að gjalda. |
11. | Til er það kyn, sem bölvar föður sínum og blessar ekki móður sína, |
12. | kyn, sem þykist vera hreint og hefir þó eigi þvegið af sér saurinn |
13. | kyn, sem lyftir hátt augunum og sperrir upp augnahárin, |
14. | kyn, sem hefir sverð að tönnum og hnífa að jöxlum til þess að uppeta hina voluðu úr landinu og hina fátæku burt frá mönnunum. |
15. | Blóðsugan á tvær dætur, sem heita Gefðu! Gefðu! Þrennt er til, sem er óseðjandi, fernt, sem aldrei segir: ,,Það er nóg!`` _ |
16. | Helja og móðurlíf óbyrjunnar, jörðin, sem aldrei seðst af vatni, og eldurinn, sem aldrei segir: ,,Það er nóg!`` |
17. | Það auga, sem gjörir gys að föður sínum og fyrirlítur hlýðni við móður sína, mega hrafnarnir við lækinn kroppa út og arnarungarnir eta. |
18. | Þrennt er, sem mér virðist undursamlegt, og fernt, sem ég skil eigi: |
19. | vegur arnarins um loftið, vegur höggormsins yfir klettinn, vegur skipsins um reginhaf og vegur manns hjá konu. |
20. | Þannig er atferli hórkonunnar: Hún neytir, þurrkar sér um munninn og segir: ,,Ég hefi ekkert rangt gjört.`` |
21. | Undan þrennu nötrar jörðin, og undir fernu getur hún ekki risið: |
22. | undir þræli, þegar hann verður konungur, og guðlausum manni, þegar hann mettast brauði, |
23. | undir smáðri konu, þegar hún giftist, og þernu, þegar hún bolar burt húsmóður sinni. |
24. | Fjórir eru smáir á jörðinni, og þó eru þeir vitrir spekingar: |
25. | Maurarnir eru kraftlítil þjóð, og þó afla þeir sér fæðunnar á sumrin. |
26. | Stökkhérarnir eru þróttlítil þjóð, og þó gjöra þeir sér híbýli í klettunum. |
27. | Engispretturnar hafa engan konung, og þó fer allur hópurinn út í röð og reglu. |
28. | Ferfætlunni getur þú náð með tómum höndunum, og þó er hún í konungahöllum. |
29. | Þrír eru þeir, sem tigulegir eru á velli, og fjórir, sem tigulegir eru í gangi: |
30. | ljónið, hetjan meðal dýranna, er eigi hopar fyrir neinni skepnu, |
31. | lendgyrtur hesturinn og geithafurinn og konungur, er enginn fær móti staðið. |
32. | Hafir þú heimskast til að upphefja sjálfan þig, eða hafir þú gjört það af ásettu ráði, þá legg höndina á munninn!Því að þrýstingur á mjólk framleiðir smjör, og þrýstingur á nasir framleiðir blóð, og þrýstingur á reiði framleiðir deilu. |
33. | Því að þrýstingur á mjólk framleiðir smjör, og þrýstingur á nasir framleiðir blóð, og þrýstingur á reiði framleiðir deilu. |
← Proverbs (30/31) → |