← Proverbs (28/31) → |
1. | Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón. |
2. | Þegar land gengur undan drottnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar, en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa. |
3. | Maður sem er fátækur og kúgar snauða, er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð. |
4. | Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim. |
5. | Illmenni skilja ekki hvað rétt er, en þeir sem leita Drottins, skilja allt. |
6. | Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en sá, sem beitir undirferli og er þó ríkur. |
7. | Sá sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur, en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán. |
8. | Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka. |
9. | Sá sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið, _ jafnvel bæn hans er andstyggð. |
10. | Sá sem tælir falslausa menn út á vonda leið, hann fellur sjálfur í gröf sína, en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð. |
11. | Ríkur maður þykist vitur, en snauður maður, sem er hygginn, sér við honum. |
12. | Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir, en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig. |
13. | Sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta. |
14. | Sæll er sá maður, sem ávallt er var um sig, en sá sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu. |
15. | Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð. |
16. | Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgun, sá sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða. |
17. | Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á, er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann. |
18. | Sá sem breytir ráðvandlega, mun frelsast, en sá sem beitir undirferli, fellur í gryfju. |
19. | Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt. |
20. | Áreiðanlegur maður blessast ríkulega, en sá sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki við refsingu. |
21. | Hlutdrægni er ljót, en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita. |
22. | Öfundsjúkur maður flýtir sér að safna auði og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma. |
23. | Sá sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli heldur er tungumjúkur smjaðrari. |
24. | Sá sem rænir foreldra sína og segir: ,,Það er engin synd!`` hann er stallbróðir eyðandans. |
25. | Ágjarn maður vekur deilur, en sá sem treystir Drottni, mettast ríkulega. |
26. | Sá sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi, en sá sem breytir viturlega, mun undan komast. |
27. | Sá sem gefur fátækum, líður engan skort, en þeim sem byrgir augu sín, koma margar óbænir.Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum. |
28. | Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum. |
← Proverbs (28/31) → |