← Proverbs (25/31) → |
1. | Þetta eru líka orðskviðir Salómons, er menn Hiskía Júdakonungs hafa safnað. |
2. | Guði er það heiður að dylja mál, en konungum heiður að rannsaka mál. |
3. | Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo eru konungahjörtun órannsakanleg. |
4. | Sé sorinn tekinn úr silfrinu, þá fær smiðurinn ker úr því. |
5. | Séu hinir óguðlegu teknir burt frá augliti konungsins, þá mun hásæti hans staðfestast fyrir réttlæti. |
6. | Stær þig eigi frammi fyrir konunginum og ryðst eigi í rúm stórmenna, |
7. | því að betra er að menn segi við þig: ,,Fær þig hingað upp!`` heldur en að menn gjöri þér læging frammi fyrir tignarmanni. Hvað sem augu þín kunna að hafa séð, |
8. | þá ver eigi skjótur til málsóknar, því að hvað ætlar þú síðan að gjöra, þá er náungi þinn gjörir þér sneypu? |
9. | Rek þú mál þitt gegn náunga þínum, en ljósta eigi upp leyndarmáli annars manns, |
10. | til þess að sá sem heyrir það, smáni þig ekki og þú losnir aldrei við illan orðróm. |
11. | Gullepli í skrautlegum silfurskálum _ svo eru orð í tíma töluð. |
12. | Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli, svo er vitur áminnandi heyranda eyra. |
13. | Eins og snjósvali um uppskerutímann, svo er áreiðanlegur sendimaður þeim er sendir hann, því að hann hressir sál húsbónda síns. |
14. | Ský og vindur, og þó engin rigning _ svo er sá, sem hrósar sér af gjafmildi, en gefur þó ekkert. |
15. | Með þolinmæði verður höfðingja talið hughvarf, og mjúk tunga mylur bein. |
16. | Finnir þú hunang, þá et sem þér nægir, svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og ælir því upp aftur. |
17. | Stíg sjaldan fæti þínum í hús náunga þíns, svo að hann verði ekki leiður á þér og hati þig. |
18. | Hamar og sverð og hvöss ör _ svo er maður, sem ber falsvitni gegn náunga sínum. |
19. | Molnandi tönn og hrasandi fótur _ svo er traust á svikara á neyðarinnar degi. |
20. | Að fara úr fötum í kalsaveðri _ að hella ediki út í saltpétur _ eins er að syngja skapvondum ljóð. |
21. | Ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, og ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka, |
22. | því að þú safnar glóðum elds yfir höfuð honum, og Drottinn mun endurgjalda þér það. |
23. | Norðanvindurinn leiðir fram regn og launskraf reiðileg andlit. |
24. | Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu. |
25. | Eins og kalt vatn er dauðþyrstum manni, svo er góð fregn af fjarlægu landi. |
26. | Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur, svo er réttlátur maður, sem titrar frammi fyrir óguðlegum manni. |
27. | Það er ekki gott að eta of mikið hunang, ver því spar á hólið.Eins og borg, sem múrarnir hafa verið brotnir utan af, eins er sá maður, sem eigi hefir stjórn á skapsmunum sínum. |
28. | Eins og borg, sem múrarnir hafa verið brotnir utan af, eins er sá maður, sem eigi hefir stjórn á skapsmunum sínum. |
← Proverbs (25/31) → |