← Proverbs (21/31) → |
1. | Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, hann beygir það til hvers, er honum þóknast. |
2. | Manninum þykja allir sínir vegir réttir, en Drottinn vegur hjörtun. |
3. | Að iðka réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn. |
4. | Drembileg augu og hrokafullt hjarta eru lampi óguðlegra, _ allt er það synd. |
5. | Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel, en öll flasfærni lendir í fjárskorti. |
6. | Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu, eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans. |
7. | Ofríki hinna óguðlegu dregur þá á eftir sér, því að þeir færast undan að gjöra það, sem rétt er. |
8. | Boginn er vegur þess manns, sem synd er hlaðinn, en verk hins hreina eru ráðvandleg. |
9. | Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu. |
10. | Sál hins óguðlega girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum. |
11. | Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi. |
12. | Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega, steypir óguðlegum í ógæfu. |
13. | Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka, hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu. |
14. | Gjöf á laun sefar reiði og múta í barmi ákafa heift. |
15. | Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en illgjörðamönnum er það skelfing. |
16. | Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar, mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna. |
17. | Öreigi verður sá, er sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur. |
18. | Hinn óguðlegi er lausnargjald fyrir hinn réttláta, og svikarinn kemur í stað hinna hreinskilnu. |
19. | Betra er að búa í eyðimerkur-landi en með þrasgjarnri og geðillri konu. |
20. | Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra, en heimskur maður sólundar því. |
21. | Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður. |
22. | Vitur maður vinnur borg kappanna og rífur niður vígið, sem hún treysti á. |
23. | Sá sem varðveitir munn sinn og tungu, hann varðveitir sálu sína frá nauðum. |
24. | Sá sem er hrokafullur, dramblátur, hann heitir spottari, sá sem gjörir allt af taumlausum hroka. |
25. | Óskir letingjans drepa hann, því að hendur hans vilja ekki vinna. |
26. | Ávallt er letinginn að óska sér, en hinn réttláti gefur og er ekki naumur. |
27. | Sláturfórn óguðlegra er Drottni andstyggð, hvað þá, sé hún framborin fyrir óhæfuverk. |
28. | Falsvottur mun tortímast, en maður, sem heyrt hefir, má ávallt tala. |
29. | Óguðlegur maður setur upp öruggan svip, en hinn hreinskilni gjörir veg sinn öruggan. |
30. | Engin viska er til og engin hyggni, né heldur ráð gegn Drottni.Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins, en sigurinn er í hendi Drottins. |
31. | Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins, en sigurinn er í hendi Drottins. |
← Proverbs (21/31) → |