← Proverbs (20/31) → |
1. | Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur. |
2. | Konungsreiði er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu. |
3. | Það er manni sómi að halda sér frá þrætu, en hver afglapinn ygglir sig. |
4. | Letinginn plægir ekki á haustin, fyrir því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt. |
5. | Ráðin í hjarta mannsins eru sem djúp vötn, og hygginn maður eys þar af. |
6. | Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin, hver finnur hann? |
7. | Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni, sæl eru því börn hans eftir hann. |
8. | Þegar konungur situr á dómstóli, þá skilur hann allt illt úr með augnaráði sínu. |
9. | Hver getur sagt: ,,Ég hefi haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?`` |
10. | Tvenns konar vog og tvenns konar mál, það er hvort tveggja Drottni andstyggð. |
11. | Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum, hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar. |
12. | Eyrað sem heyrir, og augað sem sér, hvort tveggja hefir Drottinn skapað. |
13. | Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði. |
14. | ,,Slæmt! Slæmt!`` segir kaupandinn, en þegar hann gengur burt, hælist hann um. |
15. | Til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir. |
16. | Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlendinga. |
17. | Sætt er svikabrauðið, en eftir á fyllist munnurinn möl. |
18. | Vel ráðin áform fá framgang, haf því holl ráð, er þú heyr stríð. |
19. | Sá sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi, haf því engin mök við málugan mann. |
20. | Sá sem formælir föður og móður, á hans lampa slokknar í niðamyrkri. |
21. | Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn, blessast eigi að lokum. |
22. | Seg þú ekki: ,,Ég vil endurgjalda illt!`` Bíð þú Drottins, og hann mun hjálpa þér. |
23. | Tvenns konar vog er Drottni andstyggð, og svikavog er ekki góð. |
24. | Spor mannsins eru ákveðin af Drottni, en maðurinn _ hvernig fær hann skynjað veg sinn? |
25. | Það er manninum snara að hrópa í fljótfærni: ,,Helgað!`` og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð. |
26. | Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu og lætur síðan hjólið yfir þá ganga. |
27. | Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans. |
28. | Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn, og hann styður hásæti sitt með kærleika. |
29. | Krafturinn er ágæti ungra manna, en hærurnar prýði öldunganna.Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða. |
30. | Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða. |
← Proverbs (20/31) → |