← Proverbs (2/31) → |
1. | Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér, |
2. | svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum, |
3. | já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin, |
4. | ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum, |
5. | þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast þekking á Guði. |
6. | Því að Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi. |
7. | Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega, |
8. | með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna guðhræddu. |
9. | Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendni, _ í stuttu máli, sérhverja braut hins góða. |
10. | Því að speki mun koma í hjarta þitt, og þekking verða sálu þinni yndisleg. |
11. | Aðgætni mun vernda þig, og hyggindin varðveita þig, |
12. | til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals, |
13. | sem yfirgefa stigu einlægninnar og ganga á vegum myrkursins |
14. | sem hafa gleði af því að gjöra illt, fagna yfir illsku hrekkjum, |
15. | sem gjöra vegu sína hlykkjótta og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni, |
16. | til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu, frá blíðmálugri konu sem annar á, |
17. | sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns, |
18. | því að hús hennar hnígur í dauðann, og brautir hennar liggja niður til framliðinna, |
19. | þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur, og aldrei komast þeir á lífsins stigu, _ |
20. | til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra. |
21. | Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því.En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan. |
22. | En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan. |
← Proverbs (2/31) → |