← Proverbs (19/31) → |
1. | Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en lævís lygari og heimskur að auki. |
2. | Kapp er best með forsjá, og sá sem hraðar sér, misstígur sig. |
3. | Flónska mannsins steypir fyrirtækjum hans, en hjarta hans illskast við Drottin. |
4. | Auður fjölgar vinum, en fátækur maður verður vinum horfinn. |
5. | Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, kemst ekki undan. |
6. | Margir reyna að koma sér í mjúkinn hjá tignarmanninum, og allir eru vinir þess, sem gjafir gefur. |
7. | Allir bræður hins snauða hata hann, hversu miklu fremur firrast þá vinir hans hann. |
8. | Sá sem aflar sér hygginda, elskar líf sitt, sá sem varðveitir skynsemi, mun gæfu hljóta. |
9. | Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, tortímist. |
10. | Sællífi hæfir eigi heimskum manni, hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum. |
11. | Hyggni mannsins gjörir hann seinan til reiði, og það er honum til frægðar að ganga fram hjá mótgjörðum. |
12. | Konungsreiði er eins og ljónsöskur, en hylli hans sem dögg á grasi. |
13. | Heimskur sonur er föður sínum sönn óhamingja, og konuþras er sífelldur þakleki. |
14. | Hús og auður er arfur frá feðrunum, en skynsöm kona er gjöf frá Drottni. |
15. | Letin svæfir þungum svefni, og iðjulaus maður mun hungur þola. |
16. | Sá sem varðveitir boðorðið, varðveitir líf sitt, en sá deyr, sem ekki hefir gát á vegum sínum. |
17. | Sá lánar Drottni, er líknar fátækum, og hann mun launa honum góðverk hans. |
18. | Aga þú son þinn, því að enn er von, en farðu eigi svo langt, að þú deyðir hann. |
19. | Sá sem illa reiðist, verður að greiða sekt, því að ætlir þú að bjarga, gjörir þú illt verra. |
20. | Hlýð þú ráðum og tak umvöndun, til þess að þú verðir vitur eftirleiðis. |
21. | Mörg eru áformin í mannshjartanu, en ráðsályktun Drottins stendur. |
22. | Unun mannsins er kærleiksverk hans, og betri er fátækur maður en lygari. |
23. | Ótti Drottins leiðir til lífs, þá hvílist maðurinn mettur, verður ekki fyrir neinni ógæfu. |
24. | Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en ekki nennir hann að bera hana aftur upp að munninum. |
25. | Sláir þú spottarann, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vandað um við skynsaman mann, lærir hann hyggindi. |
26. | Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, slíkur sonur fremur smán og svívirðing. |
27. | Hættu, son minn, að hlýða á umvöndun, ef það er til þess eins, að þú brjótir á móti skynsamlegum orðum. |
28. | Samviskulaus vottur gjörir gys að réttinum, og munnur óguðlegra gleypir rangindi.Refsidómar eru búnir spotturunum og högg baki heimskingjanna. |
29. | Refsidómar eru búnir spotturunum og högg baki heimskingjanna. |
← Proverbs (19/31) → |