← Proverbs (18/31) → |
1. | Sérlyndur maður fer að sínum munum, hann illskast við öllu, sem hyggilegt er. |
2. | Heimskinginn hefir engar mætur á hyggindum, heldur á því að gjöra kunnar hugsanir sínar. |
3. | Þar sem hinn óguðlegi kemur, þar kemur og fyrirlitning, og með smáninni kemur skömm. |
4. | Djúp vötn eru orð af manns munni, lind viskunnar er sem rennandi lækur. |
5. | Það er ekki rétt að draga taum hins óguðlega, að halla rétti hins saklausa í dómi. |
6. | Varir heimskingjans valda deilum, og munnur hans kallar á högg. |
7. | Munnur heimskingjans verður honum að tjóni, og varir hans eru snara fyrir líf hans. |
8. | Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans. |
9. | Sá sem tómlátur er í verki sínu, er skilgetinn bróðir eyðsluseggsins. |
10. | Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er þar óhultur. |
11. | Auður ríks manns er honum öflugt vígi og ókleifur múrveggur í sjálfs hans ímyndun. |
12. | Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar. |
13. | Svari einhver áður en hann heyrir, þá er honum það flónska og skömm. |
14. | Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans, en dapurt geð, hver fær borið það? |
15. | Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar, og eyra hinna vitru leitar þekkingar. |
16. | Gjöf sem maður gefur, rýmir til fyrir honum og leiðir hann fram fyrir stórmenni. |
17. | Hinn fyrri sýnist hafa á réttu að standa í þrætumáli sínu, en síðan kemur mótpartur hans og rannsakar röksemdir hans. |
18. | Hlutkestið gjörir enda á deilum og sker úr milli sterkra. |
19. | Erfiðara er að ávinna svikinn bróður en að vinna rammbyggða borg, og deilur slíkra manna eru sem slagbrandar fyrir hallardyrum. |
20. | Kviður mannsins mettast af ávexti munns hans, af gróðri varanna mettast hann. |
21. | Dauði og líf eru á tungunnar valdi, og sá sem hefir taum á henni, mun eta ávöxt hennar. |
22. | Sá sem eignast konu, eignast gersemi, og hlýtur náðargjöf af Drottni. |
23. | Hinn fátæki mælir bljúgum bænarorðum, en hinn ríki svarar með hörku.Að vera allra vinur er til tjóns, en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir. |
24. | Að vera allra vinur er til tjóns, en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir. |
← Proverbs (18/31) → |