← Proverbs (14/31) → |
1. | Viska kvennanna reisir húsið, en fíflskan rífur það niður með höndum sínum. |
2. | Sá sem framgengur í hreinskilni sinni, óttast Drottin, en sá sem fer krókaleiðir, fyrirlítur hann. |
3. | Í munni afglapans er vöndur á hroka hans, en varir hinna vitru varðveita þá. |
4. | Þar sem engin naut eru, þar er jatan tóm, en fyrir kraft uxans fæst mikill ágóði. |
5. | Sannorður vottur lýgur ekki, en falsvottur fer með lygar. |
6. | Spottarinn leitar visku, en finnur ekki, en hyggnum manni er þekkingin auðfengin. |
7. | Gakk þú burt frá heimskum manni, og þú hefir ekki kynnst þekkingar-vörum. |
8. | Viska hins kæna er í því fólgin, að hann skilur veg sinn, en fíflska heimskingjanna er svik. |
9. | Afglaparnir gjöra gys að sektarfórnum, en meðal hreinskilinna er velþóknun. |
10. | Hjartað eitt þekkir kvöl sína, og jafnvel í gleði þess getur enginn annar blandað sér. |
11. | Hús óguðlegra mun eyðileggjast, en tjald hreinskilinna mun blómgast. |
12. | Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum. |
13. | Jafnvel þótt hlegið sé, kennir hjartað til, og endir gleðinnar er tregi. |
14. | Rangsnúið hjarta mettast af vegum sínum svo og góður maður af verkum sínum. |
15. | Einfaldur maður trúir öllu, en kænn maður athugar fótmál sín. |
16. | Vitur maður óttast hið illa og forðast það, en heimskinginn er framhleypinn og ugglaus. |
17. | Uppstökkur maður fremur fíflsku, en hrekkvís maður verður hataður. |
18. | Einfeldningarnir erfa fíflsku, en vitrir menn krýnast þekkingu. |
19. | Hinir vondu verða að lúta hinum góðu, og hinir óguðlegu að standa við dyr réttlátra. |
20. | Fátæklingurinn verður hvimleiður jafnvel vini sínum, en ríkismanninn elska margir. |
21. | Sá sem fyrirlítur vin sinn, drýgir synd, en sæll er sá, sem miskunnar sig yfir hina voluðu. |
22. | Vissulega villast þeir, er ástunda illt, en ást og trúfesti ávinna þeir sér, er gott stunda. |
23. | Af öllu striti fæst ágóði, en munnfleiprið eitt leiðir aðeins til skorts. |
24. | Vitrum mönnum er auður þeirra kóróna, en fíflska heimskingjanna er og verður fíflska. |
25. | Sannorður vottur frelsar líf, en sá sem fer með lygar, er svikari. |
26. | Í ótta Drottins er öruggt traust, og synir slíks manns munu athvarf eiga. |
27. | Ótti Drottins er lífslind til þess að forðast snörur dauðans. |
28. | Fólksmergðin er prýði konungsins, en mannaskorturinn steypir höfðingjanum. |
29. | Sá sem er seinn til reiði, er ríkur að skynsemd, en hinn bráðlyndi sýnir mikla fíflsku. |
30. | Rósamt hjarta er líf líkamans, en ástríða er eitur í beinum. |
31. | Sá sem kúgar snauðan mann, óvirðir þann er skóp hann, en sá heiðrar hann, er miskunnar sig yfir fátækan. |
32. | Hinn óguðlegi fellur á illsku sinni, en hinum réttláta er ráðvendnin athvarf. |
33. | Í hjarta hyggins manns heldur viskan kyrru fyrir, en á meðal heimskingja gerir hún vart við sig. |
34. | Réttlætið hefur upp lýðinn, en syndin er þjóðanna skömm.Vitur þjónn hlýtur hylli konungsins, en sá hefir reiði hans, sem skammarlega breytir. |
35. | Vitur þjónn hlýtur hylli konungsins, en sá hefir reiði hans, sem skammarlega breytir. |
← Proverbs (14/31) → |