← Proverbs (11/31) → |
1. | Svikavog er Drottni andstyggð, en full vog yndi hans. |
2. | Komi hroki, kemur smán, en hjá lítillátum er viska. |
3. | Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá, en undirferli svikulla tortímir þeim. |
4. | Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar, en réttlæti frelsar frá dauða. |
5. | Réttlæti hins ráðvanda gjörir veg hans sléttan, en hinn óguðlegi fellur um guðleysi sitt. |
6. | Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá, en hinir svikulu ánetjast í eigin græðgi. |
7. | Þegar óguðlegur maður deyr, verður von hans að engu, og eftirvænting glæpamannanna er að engu orðin. |
8. | Hinn réttláti frelsast úr nauðum, og hinn óguðlegi kemur í hans stað. |
9. | Með munninum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun, en hinir réttlátu frelsast fyrir þekkingu. |
10. | Borgin fagnar yfir gæfu réttlátra, og þegar óguðlegir farast, gjalla gleðiópin. |
11. | Borgin hefst fyrir blessun hreinskilinna, en fyrir munn óguðlegra steypist hún. |
12. | Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir. |
13. | Sá er gengur um sem rógberi, lýstur upp leyndarmálum, en sá sem er staðfastur í lund, leynir sökinni. |
14. | Þar sem engin stjórn er, þar fellur þjóðin, en þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel. |
15. | Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl, er óhultur. |
16. | Yndisleg kona hlýtur sæmd, og hinir sterku hljóta auðæfi. |
17. | Kærleiksríkur maður gjörir sálu sinni gott, en hinn grimmi kvelur sitt eigið hold. |
18. | Hinn óguðlegi aflar sér svikuls ávinnings, en sá er réttlæti sáir, sannra launa. |
19. | Iðki einhver réttlæti, þá leiðir það til lífs, en ef hann eltir hið illa, leiðir það hann til dauða. |
20. | Andstyggð fyrir Drottni eru þeir, sem hafa rangsnúið hjarta, en yndi hans þeir, er breyta ráðvandlega. |
21. | Hér er höndin upp á það: Hinn vondi sleppur ekki óhegndur! en niðjar réttlátra komast undan. |
22. | Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann. |
23. | Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs, en vonir óguðlegra leiða yfir sig reiðidóm. |
24. | Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari. |
25. | Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta. |
26. | Fólkið formælir þeim, sem heldur í kornið, en blessun kemur yfir höfuð þess, er selur það. |
27. | Sá sem leitar góðs, stundar það, sem velþóknanlegt er, en sá sem sækist eftir illu, verður fyrir því. |
28. | Sá sem treystir á auð sinn, hann fellur, en hinir réttlátu munu grænka eins og laufið. |
29. | Sá sem kemur ólagi á heimilishag sinn, erfir vind, og afglapinn verður þjónn hins vitra. |
30. | Ávöxtur hins réttláta er lífstré, og hinn vitri hyllir að sér hjörtun.Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu, hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn? |
31. | Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu, hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn? |
← Proverbs (11/31) → |