Philemon (1/1) |
1. | Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir vor, heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni Fílemon, |
2. | svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þínu. |
3. | Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. |
4. | Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum. |
5. | Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú, og um kærleika þinn til hinna heilögu. |
6. | Ég bið þess, að trú þín, sem þú átt með oss, verði mikilvirk í þekkingunni á öllu því góða, sem tilheyrir Kristi. |
7. | Ég hlaut mikla gleði og huggun af kærleika þínum, þar eð þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu hinna heilögu. |
8. | Því er það, að þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það, sem skylt er, |
9. | þá fer ég þó heldur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú. |
10. | Ég bið þig þá fyrir barnið mitt, sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus. |
11. | Hann var þér áður óþarfur, en er nú þarfur bæði þér og mér. |
12. | Ég sendi hann til þín aftur, og er hann þó sem hjartað í brjósti mér. |
13. | Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér, til þess að hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins. |
14. | En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gjöra, til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung, heldur af fúsum vilja. |
15. | Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega, |
16. | ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér, bæði sem maður og kristinn. |
17. | Ef þú því telur mig félaga þinn, þá tak þú á móti honum, eins og væri það ég sjálfur. |
18. | En hafi hann eitthvað gjört á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings. |
19. | Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun gjalda. Að ég ekki nefni við þig, að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig. |
20. | Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists. |
21. | Í fullu trausti til hlýðni þinnar rita ég til þín og veit, að þú munt gjöra jafnvel fram yfir það, sem ég mælist til. |
22. | En hafðu líka til gestaherbergi handa mér, því að ég vona, að ég vegna bæna yðar muni verða gefinn yður. |
23. | Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. SömuleiðisMarkús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir. |
24. | Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir. |
Philemon (1/1) |