← Numbers (34/36) → |
1. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
2. | ,,Bjóð þú Ísraelsmönnum og seg við þá: Þegar þér komið inn í Kanaanland, þá skal það vera landið, sem þér hljótið til eignar, Kanaanland til ystu ummerkja. |
3. | Suðurhliðin skal vera: frá Síneyðimörk meðfram Edóm. Og austurendi suðurtakmarkanna skal vera suðurendi Dauðahafs. |
4. | Þaðan skulu takmörkin liggja í boga fyrir sunnan Sporðdrekaskarð og ná yfir til Sín og endir þeirra vera fyrir sunnan Kades Barnea. Skulu þau liggja til Hasar Addar og ná yfir til Asmón. |
5. | Frá Asmón skulu takmörkin liggja í boga til Egyptalandsár og alla leið til sjávar. |
6. | Að vesturtakmörkum skuluð þér hafa hafið mikla; þetta skulu vera vesturtakmörkin. |
7. | Norðurtakmörkin skulu vera þessi: Frá hafinu mikla skuluð þér taka stefnu á Hórfjall. |
8. | Frá Hórfjalli skuluð þér taka stefnu þangað sem leið liggur til Hamat, og þaðan alla leið til Sedad. |
9. | Skulu takmörkin ná til Sífrón og enda í Hasar Enan. Þetta skulu vera landamerki yðar að norðanverðu. |
10. | Að austanverðu skuluð þér setja merkjalínuna frá Hasar Enan til Sefam. |
11. | En frá Sefam skulu landamerkin liggja suður til Ribla, fyrir austan Aín. Þaðan skulu landamerkin liggja niður eftir og nema við fjallhrygginn fyrir austan Genesaretvatn. |
12. | Og landamerkin skulu liggja niður með Jórdan og enda við Dauðahafið. Þessi skulu merki vera lands yðar hringinn í kring.`` |
13. | Og Móse bauð Ísraelsmönnum og sagði: ,,Þetta er landið, sem þér skuluð fá til eignar með hlutkesti og Drottinn bauð að gefa níu ættkvíslunum og hálfri. |
14. | Því að ættkvísl Rúbens sona, hver ætt fyrir sig, og ættkvísl Gaðs sona, hver ætt fyrir sig, og hálf ættkvísl Manasse hafa fengið sinn eignarhluta. |
15. | Tvær ættkvíslirnar og hálf hafa fengið sinn eignarhluta hinumegin Jórdanar, gegnt Jeríkó, austanmegin.`` |
16. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
17. | ,,Þessi eru nöfn þeirra manna, er skipta skulu landinu milli yðar: Eleasar prestur og Jósúa Núnsson |
18. | og einn höfðingi af ættkvísl hverri til að skipta landinu, |
19. | og þessi eru nöfn þeirra: af ættkvísl Júda: Kaleb Jefúnneson, |
20. | af ættkvísl Símeons sona: Samúel Ammíhúdsson, |
21. | af ættkvísl Benjamíns: Elídad Kislónsson, |
22. | af ættkvísl Dans sona: Búkí Joglíson höfðingi, |
23. | af sonum Jósefs: af ættkvísl Manasse sona: Hanníel Efóðsson höfðingi, |
24. | af ættkvísl Efraíms sona: Kemúel Siftansson höfðingi; |
25. | af ættkvísl Sebúlons sona: Elísafan Parnaksson höfðingi, |
26. | af ættkvísl Íssakars sona: Paltíel Asansson höfðingi, |
27. | af ættkvísl Assers sona: Akíhúð Selómíson höfðingi, |
28. | af ættkvísl Naftalí sona: Pedahel Ammíhúdsson höfðingi.``Þessir voru þeir, er Drottinn bauð að skipta skyldu landeignum milli Ísraelsmanna í Kanaanlandi. |
29. | Þessir voru þeir, er Drottinn bauð að skipta skyldu landeignum milli Ísraelsmanna í Kanaanlandi. |
← Numbers (34/36) → |