← Numbers (31/36) → |
1. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
2. | ,,Hefn þú Ísraelsmanna á Midíanítum. Eftir það skalt þú safnast til þíns fólks.`` |
3. | Móse talaði við lýðinn og sagði: ,,Hervæðið menn af yður til herfarar, og skulu þeir fara á móti Midíansmönnum til þess að koma fram hefnd Drottins á Midíansmönnum. |
4. | Skuluð þér senda þúsund manns af ættkvísl hverri af öllum ættkvíslum Ísraels til herfararinnar.`` |
5. | Voru þá látnir til af þúsundum Ísraels þúsund af ættkvísl hverri, tólf þúsund herbúinna manna. |
6. | Og Móse sendi þá, þúsund manns af ættkvísl hverri, til herfarar, og með þeim Pínehas, son Eleasars prests, og hafði hann með sér hin helgu áhöld og hvellilúðrana. |
7. | Og þeir börðust við Midíansmenn, eins og Drottinn hafði boðið Móse, og drápu alla karlmenn. |
8. | Þeir drápu og konunga Midíansmanna, auk annarra, er þeir felldu: Eví, Rekem, Súr, Húr og Reba, fimm konunga Midíansmanna. Bíleam Beórsson drápu þeir og með sverði. |
9. | Ísraelsmenn tóku að herfangi konur Midíansmanna og börn þeirra og rændu öllum eykjum þeirra, öllum fénaði þeirra og öllum eigum þeirra. |
10. | En þeir lögðu eld í allar borgir þeirra, sem þeir bjuggu í, og í allar tjaldbúðir þeirra. |
11. | Og þeir tóku allt ránsféð og allt herfangið, bæði menn og skepnur, |
12. | og færðu Móse og Eleasar presti og söfnuði Ísraelsmanna hið hertekna fólk, herfangið og ránsféð í herbúðirnar, til Móabsheiða, sem eru við Jórdan gegnt Jeríkó. |
13. | Móse og Eleasar prestur og allir höfuðsmenn safnaðarins gengu í móti þeim út fyrir herbúðirnar. |
14. | Reiddist Móse þá hersveitarforingjunum, bæði þeim er settir voru yfir þúsundir og þeim er settir voru yfir hundruð og komu úr leiðangrinum, |
15. | og sagði við þá: ,,Gáfuð þér öllum konum líf? |
16. | Sjá, það voru einmitt þær, sem urðu tilefni til þess, að Ísraelsmenn að ráði Bíleams sýndu Drottni ótrúmennsku vegna Peórs, svo að plágan kom yfir söfnuð Drottins. |
17. | Drepið því öll piltbörn. Drepið og allar þær konur, er samræði hafa átt við karlmann, |
18. | en látið öll stúlkubörn, er eigi hafa átt samræði við karlmann, lifa handa yður. |
19. | En sjálfir skuluð þér hafast við fyrir utan herbúðirnar í sjö daga. Hver sem drepið hefir mann og hver sem snert hefir veginn mann, þér skuluð syndhreinsa yður á þriðja degi og sjöunda degi, svo og þeir, er þér hafið tekið að herfangi. |
20. | Þér skuluð og syndhreinsa allan klæðnað, alla hluti af skinni gjörva, allt sem gjört er úr geitahárum, svo og öll tréílát.`` |
21. | Og Eleasar prestur sagði við hermennina, er gengið höfðu í bardagann: ,,Þetta er ákvæði í lögmálinu, er Drottinn hefir boðið Móse. |
22. | En láta skuluð þér gull, silfur, eir, járn, tin og blý, |
23. | allt sem eld þolir, ganga í gegnum eld, og er það þá hreint. Þó skal það enn syndhreinsað með hreinsunarvatni. En allt sem eigi þolir eld, skuluð þér láta ganga í gegnum vatn. |
24. | Og þér skuluð þvo klæði yðar á sjöunda degi, og eruð þá hreinir. Eftir það megið þér koma í herbúðirnar.`` |
25. | Drottinn talaði við Móse og sagði: |
26. | ,,Tel þú herfangið, bæði menn og skepnur, þú og Eleasar prestur og ætthöfðingjar safnaðarins, |
27. | og skipt þú herfanginu til helminga milli þeirra, er vopnaviðskiptin áttu, þeirra er í leiðangurinn fóru, og alls safnaðarins. |
28. | Og þú skalt taka í skattgjald Drottni til handa af bardagamönnunum, þeim er í leiðangurinn fóru, eina sál af hverjum fimm hundruðum _ af mönnum, nautgripum, ösnum og smáfénaði. |
29. | Takið það af þeirra helmingi, og skalt þú fá það Eleasar presti sem fórnargjöf Drottni til handa. |
30. | En af helmingi Ísraelsmanna skalt þú taka frá eina af hverjum fimmtíu _ af mönnum, nautgripum, ösnum og smáfénaði, af öllum skepnum, og fá levítunum, sem annast búð Drottins.`` |
31. | Og Móse og Eleasar prestur gjörðu eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
32. | En herfangið _ það sem eftir var af ránsfé því, er herfólkið hafði rænt _ voru 675.000 af sauðfénaði, |
33. | 72.000 af nautgripum |
34. | og 61.000 asnar, |
35. | og alls 32.000 konur er eigi höfðu átt samræði við karlmann. |
36. | En helmingshlutur þeirra, er í leiðangurinn fóru, var að tölu 337.500 af sauðfénaði, |
37. | og skattgjaldið til handa Drottni af sauðfénaðinum var 675, |
38. | af nautgripum 36.000, og skattgjaldið af þeim Drottni til handa 72, |
39. | asnarnir 30.500, og skattgjaldið af þeim Drottni til handa 61, |
40. | og mennirnir 16.000, og skattgjaldið af þeim Drottni til handa 32 sálir. |
41. | Móse fékk Eleasar presti fórnarskattgjaldið Drottni til handa, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
42. | Og af helmingnum, er Ísraelsmenn fengu og Móse skipti frá hermönnunum _ |
43. | en í hluta safnaðarins kom: af sauðfénaði 337.500, |
44. | af nautgripum 36.000, |
45. | af ösnum 30.500 |
46. | og af mönnum 16.000, _ |
47. | af helmingnum, er Ísraelsmenn fengu, tók Móse frá einn af hverjum fimmtíu, bæði af mönnum og skepnum, og fékk levítunum, er annast búð Drottins, eins og Drottinn hafði boðið Móse. |
48. | Höfuðsmennirnir yfir þúsundum hersins, fyrirliðarnir fyrir þúsundunum og fyrirliðarnir fyrir hundruðunum, gengu nú fram fyrir Móse |
49. | og sögðu við Móse: ,,Vér þjónar þínir höfum talið bardagamennina, er vér áttum yfir að ráða, og vér söknum eigi neins af þeim. |
50. | Fyrir því færum vér Drottni að fórnargjöf hver það, er hann hefir komist yfir af gullgripum: armhringa, armbönd, fingurgull, eyrnagull og hálsmen, til þess að friðþægja fyrir sálir vorar fyrir Drottni.`` |
51. | Þeir Móse og Eleasar tóku við gullinu af þeim. Var það alls konar listasmíði. |
52. | En gullið, sem þeir færðu Drottni að fórnargjöf, var alls 16.750 siklar, og var það frá fyrirliðunum fyrir þúsundunum og frá fyrirliðunum fyrir hundruðunum. |
53. | Hermennirnir höfðu rænt hver handa sér.Og þeir Móse og Eleasar prestur tóku við gullinu af fyrirliðunum fyrir þúsundunum og hundruðunum og færðu það í samfundatjaldið, Ísraelsmönnum til minningar frammi fyrir Drottni. |
54. | Og þeir Móse og Eleasar prestur tóku við gullinu af fyrirliðunum fyrir þúsundunum og hundruðunum og færðu það í samfundatjaldið, Ísraelsmönnum til minningar frammi fyrir Drottni. |
← Numbers (31/36) → |